Hey það er ekki hægt að skamma mig fyrir að blogga ekki þegar að ég er upptekinn við pakka niður eða taka upp úr töskum. Já rétt ég var búin að vera hér í rúma viku þegar að það rann upp þessi líka fallegi sunnudagur. Við kíktum út og ákváðum síðan að hafa kósýkvöld heima með pizzu og víntári. Eftirá að hyggja skil ég ekki afhverju ég hellti ekki í mig þetta kvöld öllum Reykjavodkanum sem til er á heimilinu. Við komumst nefninlega að því að fullmikið af vatni var í geymslunni og þegar betur var að gáð var svefnherbergið og gangurinn líka að safna vatni undir dúkinn. Svo rómantíkin hvarf með vatnssugum, leigusölunum og mönnum frá ISS. Og ef það var einhver vottur eftir af rómantík eða kósýheitum þá hvarf hún fyrir lítið síðar um kvöldið þegar að við fluttum inn í gestaherbergi leigusalans í 75 cm barnarúm og allt skreytt Winnie the pooh. Spurning hvort við getum hugsað okkur kynlíf nokkuð fyrr en á næstu öld. Svo fluttum við 2 dögum seinna í studioíbúð frænda leigusalans og svo "heim aftur" og þar erum við núna. Búum með tveim þurrkurum, dótið okkar í kössum og bíðum eftir iðnaðarmönnum sem virðast ekkert vera að drífa sig. Hér ómar ekki Bach á fóninum heldur meira hann Palli minn...."Anna veistu um.....Anna veistu um....". Já elskan þetta er í litlu ferðatöskunni vinstra megin. Ha ha þetta er bara lífsreynsla. Hver annar en ég myndi lenda í svona. Tja maður spyr sig. Myndin hér að ofan er einmitt heima. Svona fyrir þá sem hafa beðið "spenntir" eftir myndum :)
Á laugardaginn var haldið hér Sparkfest í Tromsdalnum. Það er svaka stuð. Það sem til þarf er sparksleði, boð í partýið og búningur (þemað í ár var villta vestrið). Við vorum boðin til yfirmanns Palla, hún og maðurinn hennar bjóða ss 8.manns. Þarna voru allir mættir sem kúrekar með hatt og byssu.....tja nema nottla ég sem fannst upplagt að stimpla mig inn sem hóra úr villta vestrinu með tilheyrandi litlum klæðnaði og daðri af sverustu gerð. Við byrjuðum ss þarna í forrétt. Síðan er manni hennt út. Maðurinn manns skutlar manni að sjálfsögðu á Sparksleðanum sjá hér
ath að maðurinn á myndinni tengist ekki bloggaranum á nokkurn hátt :) Svo er stoppað á hverju horni....hmmmmm ef sumir ná að stoppa. Ég var orðin ansi góð í að spyrna hælunum niður til að enda ekki á hliðinni. Þarna var tekinn drykkur með fólki og spjallað áður en farið var í aðalrétt á næsta stað. Ss 3ja rétta á mismunandi stöðum með nýju fólki í hvert sinn. Alltaf byrjað upp á nýtt að kynna sig og slíkt. Þetta er frábært form og mjög skemmtilegt fólk tja nottla nema skrítni fulli kallinn í aðalréttinum sem ég hef ekki hugmynd um hver bauð og "vinkona" hans sem virtist líka eiga heima á Vogi. Svo endaði partýið uppi á Tromstindinum ef ég get sagt það. Farið upp með kláfnum og partýinu haldið áfram. Sumir voru þó orðnir frekar drukknir. Það að sveifla byssunni verður erfitt eftir stanslausa drykkju kvöldsins. Þessi mynd er tekin af bænum séð þarna ofan frá. Frekar töff en soldið You had to be there.....tja eða bara gefa mér alvöru myndavél :)
Þurfið líklega að smella á hana til að sjá eitthvað. Annars ætla ég að kveðja með mynd af okkur skötuhjúunum þetta kvöld. Tvö sem voru alveg búin á þvi. Ekki bara af áfengisneyslu. Það tekur gríðarlega á að sitja 3 mamtarboð og partý og heyra bara norsku og reyna að skilja og tala. Held að ég ætti t.d núna að hætta að blogga og fara og æfa mig í norskunni.
Later fólks og hafið góða vikurest, Anna Vala
Sumir kalla þetta hjara veraldar. Hjá mér heitir þetta bara Tromso og nýja landið mitt Noregur. Eftir tæpa viku hérna er ég að fatta að hingað sé ég actually komin. Þetta er eins og lítil lygasaga hvað allt gengur upp þegar maður á síst von á því. Ég vinn á veitingastað sem heitir Fiskerestauranten og er í miðbænum http://fiskerestauranten.no/ , reyndar er ekki mikið komið inná heimasíðuna en það kemur fljótlega. Við hjónakornin byrjuðum einmitt fyrstu kynni okkar við eigendur og starfsfólk með því að vera boðin í dinner á sunnudagskvöldið þar sem allir réttir af matseðli voru prufaðir, teknar myndir fyrir heimasíðuna og svona ásamt því að drekka ótæpilega af hvítvíni og rauðvíni. Kokkabransinn er sem sagt alls staðar eins. Smá trúnó fyrir fyrstu vaktina er t,d algerlega nauðsynlegt. Svo vildu þau fá myndir af kokkunum saman. Frekar fyndið ég er einhverjum cm stærri en eigandinn og við áttum ekki kokkagalla ss þeir voru í láni. Svo ég var uppdressuð í kjól og máluð en hann nýkomin úr eldhúsinu. Þetta verða skemmtilegar myndir. Læt ykkur kannski vita þegar þetta dettur inn. Eins og ég segi þá er þessi bransi alls staðar eins. Í gær var ég t.d ein í eldhúsinu og kann ekki alveg matseðilinn, og leitaði dauðaleit að hinum og þessum sósum. Bar eitthvað rangt fram en enginn kvartaði, þvert á móti voru allir mjög glaðir, sérstaklega með matreiðslu mína á hreindýrinu sem er eina kjötið á matseðlinum.
Lífið á nýjum stað er að taka á sig mynd, er að læra tungumálið, mjög hægt til að byrja með þar sem það hefur alveg verið um nóg annað að hugsa. Svo er að koma sér fyrir í litlu piparsveinaíbúðinni og átta sig á öllu saman. Og rétt í þessu var mér sagt að ég gæti fengið gönguskíði lánuð....það verður eitthvað kostulegt. Því eins og alþjóð ætti að vita þá er ég með íþróttafötlun á háu stigi.
Kossar og knús á klakann Anna Vala
P.s þessi mynd er af kirkjunni sem er rétt hjá íbúðinni minni, svo ef þið eruð í Tromso þá bara fara upp hjá henni þessari ....upp upp og svo til hægri :)
Ha ha þessi fyrirsögn....lýsir mér allvega ekki eða mörgum sem ég þekki. Hver veit hvað hann vill eða hvert hann stefnir. Flestum þykir gott að vita bara hvaða dagur er og ákveða hvað á að vera í kvöldmatinn. Eina sem ég veit t.d fyrir víst að það er loksins að koma sumar. Ég finn að það læðist að manni. Ég hef getað setið á svölunum, reyndar með námsbækurnar enn hey....at least I went out. Það hefur heyrt til unantekninga suma daga. Allavega er það orðið frekar súrt þegar að það telst til frétta að maður hafi farið út eða farið í sturtu. Ég finn að frelsið frá skólabókunum nálgast óðfluga og ef ég ætti að taka sumarkúrsa væri það ekki til umræðu. Tek ofan af fyrir þeim sem dettur slíkt í hug. Eins og þetta er skemmtilegt nám þá hefur þetta fyrsta ár tekið fáránlegan toll af manni. Þvílíkt stress og andlegt álag yfir einu námi. Af öllu þessu er líka augljóst að ég er á Íslandi. Þessu fylgja nefninlega endalausar pælingar um hvað sé næst og hvað ef þetta gengur ekki osfrv osfrv. Hjá mér ríkir að sjálfsögðu ekki nein eftirsjá. Ég man reyndar ekki eftir hlutum sem ég sé eftir. Enda til hvers ? Ég tel að allt sem ég hef gert í lífinu hafi skilað mér þangað sem ég er í dag og því góða fólki sem er í kringjum mig. Það er ekkert til sem heitir heppni í þeim efnum.
Annars hefur þetta gerst síðan síðast......
-farið í hvítvín og ís með Erlu þegar að við áttum að vera að læra
-misst mann til Gambíu og fengið að vita það með 12.klst fyrirvara
-grátið yfir fallegu lagi
-farið með bílinn minn í skoðun og lent í daðri hjá Frumherja....sexý ha
-tekið áhættu fyrir tilstilli vesturbæjar drottningarinnar, sem ég sé sko alls ekki eftir
-ekki trúað því að það verði ekkert meira Private Practice næstu mánuðina : (
-verið hissa, glöð, sorgmædd og dofin
-skoðað flug til New York
-verið rosalega löt og slétt sama
-misst úr svefn
-lesið erfðarétt og spáð í því að gera erfðaskrá strax
-lesið um hjónaskilnaði og spáð í því að giftast ekki
-haldið húsfund og látið flesta halda að ég ætti í ástarsambandi við nágranna minn
-verið boðin í páskamessu með öðrum granna en þáði ekki boðið
-fundið gleðina með diskinn frá vinkonum mínum frá Jamaica Brick and Lace
-verið boðin út að borða og notið góðs félagsskaps
Later fólk
Anna panna
<object class="youtube" type="application/x-shockwave-flash" style="width: 425px; height:350px;" data="http://www.youtube.com/v/_utP1mGoutQ&rel=1"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/_utP1mGoutQ&rel=1" /><embed src="http://www.youtube.com/v/_utP1mGoutQ&rel=1" type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent" type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="350"></embed></object>
Þeir sem þekkja mig smávegis vita að ég er alltaf með tónlist. Hvort sem að það er í botni í bílnum eða hvort ég spila fyrir nágranna mína. Ég held þeim við efnið hvort sem það er með nýja Prodigy disknum eða Alfreð Clausen. Tónlist er bara eitthvað sem ég gæti ekki verið án.  Það er svona eins og að vera ekki með hendi að geta ekki sett lag á fóninn. Og ég hlusta á allt sem sumum finnst öllu verra og stórskrítið. Hef margoft verið spurð hvort ég sé í alvörunni 27 ára þegar að kemur  að lögum. Kann t.d held ég alla textana með  Lónlí blú boys. Lagið hér að ofan  rakst ég á  hinsvegar á þegar að ég átti að vera að lesa fyrir próf í Almennri lögfræði. Man hvað ég var glöð þegar að ég eignaðist þessa útgáfu á kassettu hérna um árið eftir að hafa "nauðgað" því með Whitney Houston. Þegar að ég var yngri kunni ég enga ensku svo ég bara bjó til textann við lögin tja þó þau væru á íslensku var ég með minn eigin texta. Systur minni ástkærri til mikillar gleði og ánægju. Fannst ég greinilega ekki eins æðisleg og mér fannst sjálfri.....
Jæja réttarsagan heillar....get ekki hangið hér eins og kjáni
Anna Vala
Páskarnir
eru tími súkkulaðis, allavega á mínum bæ. Ég á besta nágranna og vin í
heimi. Fékk risa Nóa páskaegg  og annað til frá Góu sem nú situr á rassinum á mér. Hef þess
vegna hafið vodkokúrinn til að stemma mig af :)  Er búin að sitja með Hr Spanó og Hr Líndal yfir hátíðarnar og hafa þeir hagað sér svona sæmilega þrátt fyrir eina og eina leiðinlega ritgerðarspurningu og dóma sem ég skil ekki.
Ég minnist páskanna í
Kenya þar sem ég fékk sent páskaegg frá Kötu minni og mikið af þeim.
Algjör hamingja yfir því. Tala nú ekki um þegar að eini maturinn hefur verið hrísgjón. Minnist þess að hlaupa í messu í 27 stiga
hita og sól á Páskadegi. Vera eina hvíta dýrið og reyna að skilja hvenær ég átti að
standa og hvenær ég átti að taka í hönd fólks. Ég er kannski dugleg að
tala um Kenya en það er bara einhvernveginn svo erfitt að fóta sig í
Íslensku samfélagi svo vel sé. Erfitt að skilja að ég sé í raun komin
heim. Vil benda ykkur á færslu vinar míns sjá hér
http://hirondelle.wordpress.com/ . Finnst hann ná að lýsa svo vel
hvernig þetta er allt saman. það er nefninlega alls ekki það að Ísland sé ómögulegt þar er meira að læra að lifa aftur í núinu.
En já 15.apríl í Kenya 2008. Ég hafði
vaknað snemma og mætti til vinnu, bjóst við að finna alla þar. En þar
voru einungis stúdentarnir og vörðurinn. Engir kennarar en þessi staður
sem ég vann á var inni í miðju fátækrahverfi. Kennararnir komu seint en
ástæðan var sú að engar almenningssamgöngur gengu frá ákveðnum hverfum
og þurftu þær því að labba langa leið. Mungiki klíkan var komin í
hefndaraðgerðir og drepa átti þá sem ekki voru af Kikuyu ættbálknum.
Allt vegna dauða eiginkonu foringjans. Þeir héldu því fram að ef
foringinn hefði ekki farið í fangelsi þá hefði hún ekki verið drepin.
Við vorum í vinnunni að velta fyrir okkur hvort við ættum að senda
nemendur heim eður ei þar sem ástandið var mjög óstapílt þegar að við
heyrðum byssuskot og stuttu seinna fullt af fólki á hlaupum. Einn maður
í blóði sínu er dregin inn í fátækrahverfið. Ég leyfi mér að efast um
að hann hafi komist á spítala eða haft efni á því. Stuttu seinna erum
við að Kenyskum sið bara að drekka te og spá hvort við ættum ekki að
fara heim. Ekta Kenýskt óþarfi að ana útí hlutina. Þarna var ég komin
með verulegan hjartslátt. Þegar loks var ákveðið að loka, komumst við
ekki heim þar sem verið var að kveikja í bílum út um allt og við vorum
í raun innilokuð í skólanum. Ástandið batnaði þó 2klst síðar og mátti
ég þá hlaupa í gegnum fátækrahverfin ásamt "lífvörðum". Þessi dagur
lifir eins og svo margir aðrir í minningunni. Hann endaði þó vel og
samkvæmt dagbókarfærslu fékk ég Mæju í mat til mín og fékk íslenska bók
að heiman.
Hvað vill maður meira? Gleðilega Páska
Anna Vala
p.s myndin er af "búðinni" minni :)
Ég held að líf mitt sé að verða eins og lögfræðin í stikkorðum og sem fæstum orðum. Skil ekki afhverju fólk spyr mig ennþá hvað ég sé að gera eða sé að fara að gera. Svarið er: LESA...já ok en hvað ætlarðu að gera í kvöld uuuu: LESA. Svo finnst mér skrítið að ég heyri ekki í fólki, held að það þori einfaldlega ekki að hringja til að trufla ekki námið. Og hvernig gengur námið....uuu fínt held ég. Fyrir þá sem að ekki hafa setið þessa kúrsa er það fljótlega útskýringin að það eru 100 % próf svo maður verður bara að vona að maður sé að ná hvað sé í gangi, engin verkefni eða slíkt. Sem hefur jú kosti og galla. Maður situr ekki sveittur að skila en að sama skapi veit maður ekkert hvar í veröldinni maður er staddur. Já svona er lífið í Kópavoginum, stofan mín lítur út eins og bókasafn og félagslífið er eins og hjá eldri borgara...RIGHT. Nei annars miklu meira stuð hjá eldri borgurum. Þeir fara í kirkju, spila yatzi og svona. Eina kirkjan sem ég hef náð hefur verið messan sem við spilum á Jómfrúnni á sunnudagsmorgnum. Annars fékk ég mér aðeins neðan í því um daginn, náði að hrynja um 1 fyrrverandi, tala óvarlega í leigubíl við vini mína og heyrði síðan....Anna ert þetta þú frá leigubílstjóranum. Sem í þessu tilfelli þekkti þann sem ég var að ræða um. Ég eldrauð í framan. Gott það sást ekki vel þar sem ég var með tonn af meiki og það var myrkur. Reyndi síðan að tala mig út úr vandræðunum ( gekk ekkert vel). Annars væri týpískt kvöld hjá mér svona eins og gott laugardagskvöld í sl viku þegar að Jói vinur minn droppaði við. Álftagerðisbræður á fóninum, túlkun lagaákvæða í lestri og á gasinu var soðið slátur. Nota bene ég held að Jói sé enn að jafna sig : )
I am living on the edge
Love Anna Vala
p.s hver getur giskað hvað fyrirsögnin þýðir ????
Var hvött til að byrja að blogga aftur. Ætli sá maður vilji ekki helst sjá hér dómareifanir Hæstaréttar sem er eiginlega það eina sem ég hef til málanna að legga þessar vikurnar nema kannski einstaka lög um hjúskap. Gæti einnig verið svolítið villt á því farið í samningalögin. En að öllu þessu slepptu þá líður tíminn of hratt. Það er víst komin mars og 8.vikur í hið hræðilega próf í almennri lögfræði. Ég gæti því orðið ennþá leiðinlegri þegar á líður. Hefði aldrei trúað hvílík geðveiki eitt nám getur verið. Fólk sefur ekki, aðrir eru á lyfjum, enn aðrir væla hjá námsráðgjöfum, sumir sækja aukatíma eins og enginn sé morgundagurinn og enn enn aðrir spila sig kúl á Þjóðarbókhlöðunni en gráta í bjórinn sinn á ölhúsum bæjarins þegar kvölda tekur. Ég reyni þó öðru hvoru að sparka í sjálfan mig til að minna mig á að það skiptir ekki máli hvort ég klára þetta eða ekki. Eða hvort ég klára þetta á 3 eða 5.árum. Það er fullt af tækifærum öðrum ef þetta gengur ekki. Afhverju fylgir það manni að vilja alltaf hafa plön ?
Vinur minn sendi mér þetta á dögunum....því miður er þetta rétt hjá honum!!
"Það verða að vera downs til að þú vitir hvenær þú ert í ups, ....Stress og samviska eru til að segja þér hvort þú sért að gera rétt eða rangt, en það getur alltaf gengið of langt eins og það hefur gert hjá fólki sem ég þekki. OG ef þú værir full í Afríku núna værir þú eins og kjáni, vegna þess að það er miður dagur þar"
Knús og góðan dag til allra
Anna Vala þessi með króníska samviskubitið
p.s Þessi mynd er fyrir alla sem eru ekki á Feisbúkk !!
Nú árið er liðið í aldanna skaut....já og aldrei kemur til baka. Alveg er ég viss um að nágrannar mínir vita það þar sem lagið hefur núna hljómað ca 10 x fyrir þá ( þegar þetta var skrifað) :)
Mér finnst áramót alveg svakalega merkileg og þetta lag. Gaman að horfa til baka og sjá hverju maður hefur áorkað og tekist á við á árinu. Það sem virkaði eins og óklífandi fjall var bara ekkert svo mikið mál eftir allt saman. Árið var yndislegt hjá mér. Ég var meirihluta þess í Kenya, tókst í byrjun árs á við það að búa í hálfgerðu stríðslandi, frammi fyrir átökum í Kenya. Sú reynsla mun aldrei fara neitt. Ég minnist fréttabanns, hættunni á eitruðu vatni, vopnuðu mannanna sem ég mætti og var að spá í að fela mig. Fattaði þá að ég var hvít og að fela sig var eins og endurskinsmerki í tunglsskini. Tilfinningunni um að verða kannski innlyksa í Kenya ef að allt væri á versta veg. Spá í því að ég vildi ekki fara heim og er glöð að hafa haft styrk til þess að vera áfram þó vitandi að fólki drepnu í 1klst fjarlægð og fólki að berjast í 10mín radíus....já ég get talað endalaust um Kenya.
Kom heim og hóf háskólanám, kynntist þar yndislegu fólki og enn á ný hef ég fengið tækifæri til að takast á við eitthvað nýtt.
Háskólanámið hefur fengið mig til að hugsa og sjá marga hluti í svo nýju ljósi. Oft hef ég hugsað hvað ég sé eiginlega spá þegar að maður hefur fengið að detta á rassinn og falltölur upp á 70 og 80% birtast manni til mikillar gleði. Enn ég held bara áfram enda er ég að gera þetta fyrir mig engan annan. Ég hef leitað að innri styrk og baráttuþreki og hugsað hey ég get þetta tja svo er líka ótrúlegasta fólk sem hefur enn trú á mér. Enn hvað ætli nýtt ár beri í skauti sér ? Ég er rosa spennt, pínu glöð með kreppuna þó auðvitað vilji ég ekki sjá neinn þjást enn tel að við höfum mörg hver gott af því að komast niður á jörðina. Meta að það er meira til enn nýtt sófasett og einbýlishús. Meta hvert annað, vináttuna og það bara að vera til. Kannski minnkar t.d hraðinn hér aðeins sem væri svona líka flott fyrir mig þar sem Kenýskur tími væri brilliant fyrir mig. Mæta 1klst of seint og enginn kippir sér upp við það. Ég er ekki frá því að síðan þetta hrun fór af stað sé fólk orðið vinalegra, kannski mín ýmyndun enn þá kannski góð ímynd.
Læt þetta nægja í bili á nýju ári og heiti nýju bloggi innan skamms
Anna Vala
p.s Fyrri myndin er fréttamynd frá Kenya ( það sem var í gangi fyrir ári). Sýnir skot sem fór "óvart" inn um glugga og drap móður barnsins sem þarna situr. Þess ber að geta að barninu var bjargað.
Seinni myndin eru íslensku börnin mín Auður Eva og Atli Rúnar.
Eftir langan tíma án bloggs sé ég mér fært að setja stafi á tölvu. Kannski bara af því að ég á að vera að lesa Evrópurétt eða reyna við lögskýringarfræði. Hver kannast ekki við það að gera allt annað enn að læra þegar að það er á dagskrá? Það er skrýtið hvað maður getur verið andlaus af lærdómi og þreyttur. Bjóst ekki við að hægt væri að sofna með Túlkun lagaákvæða á nefinu oft sama daginn, sofa í Háskólabíó 2x í sama tímanum þó úthvíld hafi verið og farið þreytt inn í rúm kl.15 að degi til.
Annars er ég jólastelpa og er farin að hlakka ískyggiilega til jólanna, reyndar verður þetta meira í ár ég hlakka til 19.des enn þá lýkur einmitt prófinu mínu. Ég hlakka líka til að geta þá komið mér fyrir í litlu höllinni minni sem brátt tekur við Mömmu sinni aftur. Flyt inn 1.des svo fólk getur farið að droppa í kaffi eða fært mér mat. Mér þykja einmitt góðar lærissneiðar í raspi, kjötbollur og soðinn fiskur....bara svona ef ykkur vantar hugmyndir. Annars er ég eins og bakkaköttur "ét allt".
Mér finnst  annars ótrúlegt að vera komin í neyslubrjálæðið aftur. Hvað gerði ég fyrir síðustu jól  og um jólin hmmmm....
Kenyubúar halda upp á jóin á jóladegi. Jóladagurinn 2007 rann upp og sólin skein, enda desember einn heitasti mánuður ársins. Fósturmóðir mín og systir fóru til vinnu útaf kosningunum. Ég hinsvegar hjálpaði hússtelpunni ásamt slatta af ættingjum að undirbúa jólin. Við þrifum húsið,já ég semsagt skreið um á fjórum fótum og skúrað köngulónnum mínum burt,  mennirnir slátruðu geit, ég steikti Chapati brauð ásamt frænkum og við bjuggum til meðlæti og allt það. Að þessu loknu var allt frekar rólegt.  Seinnipart dags var ég búin að skipta um föt og fór og hitti vinnufélaga minn á barnum, við drukkum nokkra öl áður enn ég fór heim, át geitakjöt, drakk gos sem aðeins er ert til Hátíðarbrigða og ættingjar komu til að borða með okkur og syngja jólasöngva. Eina gjöfin sem var afhennt þennan dag var fótbolti sem ég gaf litla bróður.
Ég viðurkenni að ég hafði kviðið þessum degi eilítið við útförina þar sem ég hafði aldrei upplifað jól annars staðar enn heima á Íslandi. Ég var hrædd um að þennan dag kæmi fram allur minn söknuður. Hann kom aldrei í þeirri mynd sem ég hélt.  Mér finnst núna að þessi einu jól séu eins og jólin eigi að vera.
Og bara svona í endann er hér smá frá Móðir Theresu..Sonie vinkona átti það til að lesa um hana fyrir okkur samstarfsmennina hjá Rauða Krossinum hvort sem að fólki líkaði betur eða verr Ég man að ég hlustaði yfirleitt með ákafa því að á þessum hörmungartímum sem við upplifðum með fjölda fólks að deyja daglega og annar eins hluta stórslasaðan eða foreldralausan. Þá var gott að geta hugsað um eittthvað fallegt. Sonie thanks
"Even the rich are hungry for love, for being cared for, for being wanted, for having someone to call their own"
Mother Teresa
Knús í bili Anna Vala
-Verið í stífri aðlögun á Íslandi
-Eignast dóttur
-Hafið nám í lögfræði og glaðst yfir því að fólk hefur rangt fyrir sér þegar talað er um það sé þurrt nám.
-Hlegið í tímum hjá Róbert, tja nema þegar ég hélt hann myndi spyrja mig um Aðskilnaðardóminn sem ég vissi ekkert um.
-Þurft að bíta mig fast í tunguna þegar talað er um skort og kreppu á Íslandi
-Átt í fallegum samskiptum við vini mína heima og erlendis.
-Spáð í því að halda námskeið fyrir ungt fólk um innkaup, eldamennsku og fjármál almennt
-Þurft að játa mig sigraða í slagnum um að maður þurfi ekki bíl í Reykjavík og keypt einn slíkan
-Verið full norður í landi, farið á trúnó og fengið danska vinkonu í heimsókn
-Uppgötvað að það er líf eftir Kenya, þó ég sé enn ekki viss um hversu mikið það sé
-Lært næstum allt um kál og stál bandalagið
-Fattað að 19 kr isk eru ekkert svo mikið og ég þarf ekki að hafa samviskubit yfir að fólk skyldi eyða þeirri upphæð í að senda mér sms til Kenya.
-Fylgst með vinum og kunningjum erlendis gera nýja hluti og ferðast til annara landa. Hef uppgötvað að ég get alltaf farið aftur.
-Spáð í því að blogga eins og 100x enn það skeði aldrei.
-Saknað Adam sem sjá má hér á myndinni, verið stolt af honum vitandi það að hann er að kenna krökkum í Slovakíu að mála.
-Uppgötvað að Íslendingar tala ekki Swahili
-Boðið sjálfri mér á ASÍ þingið
-Uppgötvað að það er hægt að sofna oftar enn einu sinni yfir sömu bls unni í bók Hr Líndal
-Haldið hluthafafund í Glitni og haldið upp á afmæli Pútíns
-Hlegið oftar enn einu sinni af Baggalút
Knús Anna panna
Mánuði seinna er loksins hægt að blogga. Ekki það að talvan mín hafi ekki virkað eða nettengingin verið til staðar heldur er bara erfitt og skrítið að vera komin heim.
Við Gulli höfum líkt þessu öllu saman við það að vera í aðlögun á leikskóla. Ég hef verið algerlega úti á túni. Veit ekkert hver er hvað í blöðunum,  veit ekki alveg hvað hefur gerst á árinu, hef ekki horft á næturvaktina, skil því ekki einfalda brandara  þaðan, ég veit ekki lengur hvernig á að gera suma hluti.  Er enn að átta mig á því að ég hef heitt vatn og þvottavél.
Ég hef einnig verið í sjokki hversu hátt við Íslendingar lifum & hvað allir hafa það hreinlega æðislega gott  hérna, ég sé ekki þessa kreppu og þó svo fólk hafi það ekki allt æðislegt þá eru hér skriljón tækifæri til að breyta því. Ég er nú samt ekki bara sokkin í flöskuna eins og hefði mátt skilja á dögunum þegar að ég talaði við ameríska vinkonu mína sem líka saknar Africu.
Ég: I have been feeling like a crazy alcaholic these last days. (Meaning sometimes everything is great and on the other hand everything sucks)
Hún: Ooohh yes me too I have been drinking a lot. Have to quit shortly to drink because the school is starting (she is a teacher)
Það var yndislegt að koma heim þó ég hafi ekki einu sinni séð út um gluggann í Leifstöð ekki var það heldur útaf rigningu eða snjókomu. Heldur sú staðreynd að ég var önnum kafin við að knúsa ælupokann minn. Ég sem var búin að hlakka svo til að heyra setninguna "góðir farþegar velkomin heim". Er núna ekki einu sinni viss um að flugfreyjan hafi sagt það. Var veik frá því að ég sá Flugvél Icelandair í London þar til ég lenti í Keflavík.  Þórdís yndislega fallega vinkona mín sem náði í mig til London. Játs hún er flottust, kom tók með mér lunch og flaug með mig heim þurfi að hlusta á mig kasta upp, væla um veikindi mín á ensku, hún er hörkutól.  Gulli besti flugþjónninn minn stóð sig líka vel enn ætli ég hafi ekki verið hundleiðinleg og langaði hvorki í snakk, súkkulaði né vín. Já það er augljóst að ég var veik. Það tók mig góða viku að hætta að tala ensku í stað íslensku. Er enn að blanda þessu saman og man ekki íslensk orð. Heilinn minn er bara ekki komin heim. Vonast samt til að sjá hann fljótlega.Þarf mikið á honum að halda þessa dagana.
Það er gott á Íslandi, við höfum allt, flestir taka því sem sjálfsögðu, það er gott að vera laus við magakveisur, soðið vatn og menn sem geta ráðist á mig. Ekki svo að skilja að Ísland sé algerlega safe. Er að venjast því að vera með fullt öryggi. Stóð mig að því á Akureyri að líta bakvið mig eftir kl.23 og spá hvort mér væri hreinlega óhætt að labba heim og það með i-podinn á mér. Ég sakna samt sem áður Afríku mikið og lífsins þar.  Afslappaðra tempó og fólk hefur tíma hvort fyrir annað. Það er dapurlegt hvað fólk er busy hér. Suma vini mína hef ég t.d ekki séð síðan ég kom heim.
Myndin hér að ofan er tekin í New York....tja hvað var ég að gera það. Fór í sjokk meðferð með Gulla. Eftir það náði ég upp tempoi að nýju. Gulli var orðinn þreyttur á að þurfa að biðja mig 5x um að drifa mig og þurfa síðan að moka mér út um dyrnar. Við skemmtum okkur að sjálfsögðu stórvel í þessa 24 tíma eins og má sjá á Visa reikningi frúarinnar. hmmm þessi mynd hlunkast ekki inn svo síðar....
Nóg í bili
Anna Vala
Komin heim með bloggleti dauðans og alla aðra leti, hef átt fullt í fangi með að halda í Íslenskt samfélag og kemst sko ekki með tærnar þar sem þið eruð með hælana.
Er með sama símanúmer og ég hef alltaf verið með 8631524 svo ef þið viljið heyra í mér þá taki þið bara upp símann. Ég er mjög fátæk af númerum þar sem símanum mínum var stolið 2x úti.
Knús Anna
Eg er ad fara heim....i dag. Tad er svo fjarri tvi ad vera raunverulegt. Enn oll aevintyri taka vist enda. Tad verdur gott ad koma til Islands to tad se omurlegt ad kvedja folk. Eg er buin ad vera a hlaupum fra tvi ad eg lenti i Nairobi i gaer eftir viku a Zanzibar. Kvedja,  pakka, knusa, grata, borda, sja allt i sidasta skipti, taema herbergid mitt, versla otarfa og allt tad.
Er a leid i kaffibolla og chapati.....i sidasta sinn i bili.
Se ykkur oll a Islandi um helgina
Anna Vala
Eftir annasama helgi i sveitinni er komid fri.  Hoggva mais nidur, lata folk i heradinu snua sig ur halslidnum yfir hvitu konunni sem stod a pilsi med Panga(svedja) i hendi og sveifladi henni fast til ad na orruglega trenu i einu hoggi.....ta er eg lent nakvaemlega herna (sja mynd).
28gr og sol. Lennti i morgun a flugvellinum i Zanzibar sem er eyja i Tanzaniu, nagrannariki Kenya. Nadi ad koma mer a flugvollinn tratt fyrir einungis   4tima svefn,  stjornmalaumraedur fram a nott, is at og of mikid Lost glap.
Tegar af flugvellinum kom akvad eg ad koma mer i Taxa a hotelid mitt. Tad vildi ekki betur til enn kalluglann sem keyrdi hafdi ekki tekid bensin og sat eg tvi fost i 20min ad bida eftir dropanum.  Alveg ekta eg, sat tarna sveitt i gallabuxum og peysu. Annars verd eg her til 5.agust, mun hitta Juliu mina eftir nokkra daga, rifja upp sludur sidasta manadar, fa lit og drekka kokteila. Svo er bara ad koma ser til Nairobi og pakka. Verd komin til Islands 7.agust. Aetla mer ad reyna ad na einum lunch med systur minni i.
London tann 6. agust. Annars vil eg nota taekifaerid og auglysa goda thjonustu postsins i Kenya sem eg er alltaf svo glod med. um ad gera ad senda pakkana bara tadan. Tekur ekki nema 8.manudi til Evropu. Frekari upplysingar ma fa a e-maili hja mer.
Vona ad tid seud ekki ad brenna a austurvelli
Gledilega Thjodhatid
Anna Vala
Vekur upp ansi blendnar tilfinningar. I fyrsta lagi er eg bara nykomin "heim" til Kenya og naut min i botn i Sudur Afriku. Gaeti vel hugsad mer ad bua annars stadar enn a Islandi og ferdast meira um heiminn. Lifid er bara svo fullt af moguleikum eins og yndisleg vinona min og fraenka ordadi svo skemmtilega a dogunum.
Eg er ordin undirbuin fyrir kultur sjokk a Islandi tar sem ad mer leid soldid eins og konu sem hafdi nyskridid ut ur torfkofanum tegar eg kom til Cape Town, tar sem er tolvuvaett kassakerfi,  netid actually virkar, tu getur borgad med korti, folk a bila. Tar voru ekki upp pimpadir Matatu bilar, maturinn var evropskur og vinin god. Heit sturta og tvottavel. Alger luxus. Fannst tetta vera fullmikid stundum, velti tvi fyrir mer hvort eg verdskuldadi allt tetta.
Mig hlakkar hinsvegar til ad sja vini mina og fjolskyldu, borda islenskan mat og fa islenskt vatn. Island verdur alltaf heim heim.
Eg er buin ad vera eins og litid barn a jolum ad vera aftur i Nairobi tar sem eg tekki hlutina vel, fa mer aftur hrisgrjon og egg var himneskt og matatu ferd, hlusta a oll uppahaldslogin min og dansa med.
Lifid er svo fallegt og skemmtilegt. Gaman ad vera i Nairobi og detta um vini sina i matatu, a gotunni eda i verslunnarferd. Tad er ad vera heima.
Annars veit eg ekkert hvad tekur vid tegar eg kem heim. Aetla bara ad leyfa tvi ad koma i ljos hef hugmyndir sem eru bara i vinnslu. Hver segir ad madur turfi alltaf ad plana allt.  Tad eru komnar myndir inn a siduna mina. Her ma sja mig og Nancy tilbunar i vinsmakk og sidan Sudur Africu morgaesina. Saet ha??
Knus a alla Anna Vala sem tarf ad skoda flug til Tanzaniu....mig vantar lit, her er kalt.