Færsluflokkur: Bloggar

Þegar ég var í Kanada....

IMG_3226Þá var æðislega gaman, allir voru kurteisir og spurðu mig hvernig ég hefði það, ég drakk Keith's red eða Rickards red bjór á hverju götuhorni meðan hinn töskulausi aðilinn sem "brann ekkert í ferðinni" verslaði föt og blæjubíllinn okkar var orðin eins fastur punktur af tilverunni og nágrannarnir í Kópavoginum. IMG_3261Ég var á svo stórri svítu að ég þurfti ekki að hitta sambýlismanninn og Hersey's kossar biðu okkar á hverjum morgni ásamt morgunmatnum og veðurspánni fyrir daginn. Halifax er ábyggilega ekki söm eftir komu okkar og þá meina ég að fólk sé grátandi af söknuði. Við sáum Beauty and the beast í Neptuna leikhúsinu og ónefnd afgreiðslustúlka vildi gjarnan að við hefum náð að sjá Ólíver yfir jólin (Ja kannski við kíkjum við síðar), við átum yfir okkur af ostaköku við Peggy's cove og döðruðum við fólk. IMG_3213Ég get sko sannarlega mælt með Halifax. Jafnvel er alveg eins gott að fara þangað farangurslaug, ja það má allavega prufa það. Það gerðum við bæði og gekk bara flott. Reyndar blæðir Visa kortinu ennþá enn hvað um það. 
Ég læt að síðustu fylgja með mynd af puttalingunum okkar sem fengu að fljóta með okkur til Halifax og fannst dýrt að fara út að borða fyrir 1200-1800 kr á manninn.....já við erum local enn þögðum bæði þunnu hljóði meðan okkur var sagt frá þessu svaðalega okri í Kanada.Tounge
IMG_3273Núna blasir ekkert við nema svona líka ískaldur og rigningarlegur sannleikur. Ísland ég er komin heim þar sem að allt er nákvæmlega eins og það var þegar að ég fór að heiman. Vonandi fer ég að fara á heitari slóðir....meira síðar elskurnar.

 

 

 Love Ms Kristmundsson


El monday

IMG_2845

IMG_2849

Ef að þið haldið að ég sé búin að gleyma því að ég fór á Josh Groban tónleikana sem haldnir voru í höllinni...þá fer því sko fjarri. Josh kallinn var bara snilld. Syngur eins og engill, er með húmor og var bara flottur í alla staði. Eina sem var flottara enn tónleikarnir er engillinn sem fór með mér. Þið sjáið hana hér til hliðar. Ef hægt er að brosa hringinn þá gerði hún það. Miss Aldís Groban það styttist í sólarferðCool Svo talar fólk um að Josh sé væmin og asnalegur....rugl. Hvað er líka asnalegt við að syngja um ást, væntumþykju og gleði ???? Endilega útskýrið það fyrir manneskju sem ekki skilur. Ég labbaði allavega út með gæsahúð, fallegar hugsanir og gleði í hjarta....væmin ha?

 

 Og ef þið hafið ekkert að gera....eða eruð alveg starfslaus eins og sagt er á mínum bæ þá hlustið á þetta http://www.youtube.com/watch?v=0MyOTOyvk34 .

 Love Anna ógisslega væmna


Út fyrir endimörk alheimsins

Buzz-LightyearEr setning sem á vel við í dag þegar að ég lenti í Kittilá eftir 1 1/2 klst flug, heilan disk með Josh Groban hrotum og smá slefi koddann og á vinnufélaga sem flaut með. Já ég er lent í miðju Lapplandi í Finnlandi. Einu skepnurnar sem ég býst við að hitta þér utan við fundarliðið er jólasveinninn og nokkur hreindýr. Hér er ofsalega fallegt. Snjór, bjart yfir, skíðasvæði sem við íslendingar myndum sjálfsagt frekar kalla hól enn fjall og endalaus tré. Virkilega rómantískt ef maður væri ekki í vinnunni. Þá væru hér rómantískar gönguferðir, spa og kúr. Enn í staðinn eru það fundur. Kem bara síðar í rómansinn ja eða í skíðaferð. Þegar ég verð búin að læra á skíði, búin að fara í nokkrar ferðir til Ítalíu og komin með leið á því. Þá kem ég aftur hingað.

 Later fólks
Anna og hreindýrin


Amsterdam-Helsinki

amsterdamTjellingin er komin út fyrir landsteinana hvorki í fyrsta né síðasta sinn. Þetta var hinsvegar mín fyrsta ferð til Amsterdam en er núna þegar þetta er skrifað lent í Helsinki. Ég fór til Amsterdam með frekar hálfum huga og ekki alveg að nenna því enn hef sko engar efasemdir núna. Borgin er falleg, skemmtileg og þægileg í alla staði og fólkið indælt. Nei ég er ekki að tala um konurnar í rauða hverfinu. Kíkti nú samt þangað og verð að segja að ég eiginlega skammaðist mín. Finnst þetta eitt það mest niðurlægjandi sem ég hef á ævi minni séð. Konur í einhverjum litlum gluggum og mér fannst þetta nú bara meira eins og búr. Svo er hassið leyfilegt þarna ohh my oohh my nú veit litla sveitastelpan í alvöru hvernig hass lyktar og það er hægt að fá hass á alla vegu reykja það, hasskökur, hasssúkkulaði, kannabissleykjó osfrv osfrv. Eiginlega bara fyndið hvað þeir eru stoltir af þessu svo ekki sé minnst á allar vörurnar sem hægt er að kaupa með hasslaufi á. Fór í þessari för út að borða á tveimur æðislegum stöðum. Sá fyrri er japanskur og kokkurinn eldar fyrir framan mann, hrein snilld. Hinn er Mitchelin staður með eina stjörnu. Eitt það flottasta sem ég hef farið á. Fengum í það minnsta 9 rétti og eitthvað meira af víntegundum. Maturinn hrein og tær snilld og þjónustan á topp 3. Mátti ekki standa upp án þess að fá nýja servéttu og þjón sem kom og lagaði fyrir mig stólinn he he. Ég var gjörsamlega eins og prinsessan á bauninni. Eins og ég segi stundum hvernig væri líf mitt ef að ég hefði áhuga á öðru enn mat?? Jæja ætla að leggja mig smá. Ferðaþreyta og bjórþreytan sækir á. Set inn matarmyndir síðar Tounge

Knús á klakann Anna sólbrennda


X-hvað??

kosningar-ljonÞað kemur fyrir að stjórnmál eru rædd á mínu heimili, kannski af því að ég bý með einum sem er að læra slík fræði eða af því að við erum spes. Þau voru aldrei rædd neitt sérstaklega á mínu heimili nema að tuðað var yfir að allt væri að fara fjandans til og síðan var Sjálfstæðisflokkurinn kosinn enn og aftur. Davíð Oddson var goðið, finnst t.d núna líklegt að búið sé að taka niður fermingarmyndina af mér í röndótta kjólnum mínum og búið að setja upp mynd af Davíð. Ég get stolt sagt að það hefur ekki gerst á minni stuttu ævi að ég hafi kosið X-D. Ef ég kysi hann og stæði með hans málum öllum saman ynni ég líklega fyrir VR og væri ekki þar sem ég er í dag. Því samkvæmt Sjálfstæðisflokknum hafa bara allir jöfn tækifæri, bara spurning hvernig fólk fer með þau. Bara óheppin þú ef þú dasst....X-D reisir þig ekkert við. Verkalýðsfélög hljóta því að vera óþörf því að við lifum í svo góðu samfélagi. Enginn þarf á sjúkradagpeningum að halda né styrk til að mennta sig. Það þarf í raun ekki niðurgreiðslur á einhverjum sumarbústöðum eða hvað??

Leyfi mér að mæla með þessu video http://youtube.com/watch?v=K0UUph7d6dQ

Endilega skoðið þetta líka....margt satt þarna http://youtube.com/watch?v=8Hx9GAhRMDA&mode=user&search=

Kjósið rétt, þangað til næst....

Anna kosningapanna

 


Þreyta.is

ViewAlbumImageÞreyta er það orð sem að best á við á annars þessum fallega sunnudegi. Mokaði mér loks framúr í morgun og byrjaði að þvo þvott og gera fínt heima ekki hægt annað enn að þvo í þessum líka brakandi þurrki....já ég lifi á brún spennunnar og tala eins og bóndadurgur:)
Það er búið að vera mikið að gera 16.þing Rafiðnaðarsambandsins um helgina sem gekk það svona líka dásamlega enn einhversstaðar varð af að taka og því nagar þreytan mig í rassinn í dag. Bæði vinnuþreyta og dansþreyta. Ég átti samtal við vin minn áðan og var að segja honum frá kvöldinu og hvað Mannakorn hefðu verið æðislegir á ballinu.....greyið maðurinn átti hreinlega erfitt í símanum. Fannst það hreinlega lítið hipp og kúl að fíla Mannakorn. Öll góðu  lögin voru tekin eins og einhversstaðar einhverntímann aftur, Gamli góði vinur og hið klassíska lag Ég er a leiðinni. Já ég hlýt að hafa fæðst 85. ára því ég kann alla textana við þessi lög líka og finnst þau frábær. Dansaði svo mikið að þegar að skórnir voru farnir að meiða mig var bara farið úr þeim og dansað á næloninu.
Enn að einhverju nýstárlegra....Josh Groban tónleikar þann 16.maí  og ég bara verð að fara í fötin hennar Aldísar og setja inn smá myndband með þessu sjarmatrölli http://www.youtube.com/watch?v=M_cTASWYqYM . Er einmitt svo heppin að fá að fara á þessa tónleika með Aldísinni minni. Síðan er það Amsterdam þar á eftir. Mikið hlakkar mig til, það voru jú ekki nema 26 gráðu hiti þar í vikunni sem leið....já já það voru hvað 23 gráður í Ásbyrgi um helgina fínt fyrir þá sem þar voru. Hef ekki orku til að blogga meir....kannski einhvern tímann einhverntímann aftur.....bla bla

Anna panna


Sumarið....

IMG_2755Er komið loksins,  það er eins og maður léttist um 20kg við að sjá þetta gula kvikindi. Semsagt ekki ræktin sem gerir mig svona fit heldur sólin og nammið sem sambýlismaðurinn dregur heim í voginn:) Lífið gengur sinn vanagang reyndar heldur meira að gera í vinnunni núna þessa daga enn það kemur manni nú bara í stuð. Fullt af nýjum hlutum til að læra, eitthvað sem ég elska til þess er maður að lifa til að læra. Ja sumt finnst mér meira gaman að læra. t.d er ekkert gaman að sitja kúrsa hjá manni sem að getur ekki talað. Sorry hann stamar hræðilega. Svoleiðis fólk á ekki að kenna. Enn svo fær maður smá upprifjun á morgun á hlutum sem maður lærði hérna um árið og var að eigin sögn helv. fín í. Já stelpan tekur kokkavakt sem heyrir núna til frétta. Hún eldar að mestu bara heima hjá sér þessa dagana...svona fyrir sig og grannana. Hlakka bara til að vinna smá, ég fæ líka svo góðann félagsskap.
Annars er að líða þessi líka rólegheitardagur. Svona stúss og útréttingadagur sem endaði með smá lúr heima og fótsnyrtingu í Laugum Spa. Já tjellingin kann að dekra við sig. Það er eitthvað sem hún er að læra. Setja sjálfa sig nr 1. Annars auglýsi ég hér eftir manneskju til að koma með mér í jóga tíma. Verður að vera léleg-/ur í Jóganu til að ég líti ekki enn verr út. Ekki hika við að hafa samband.....kjörið tækifæri til að sjá mig í jafnvægisæfingum hehehe

Kossar
Anna Vala


Nýr engill hefur litið dagsins ljós !!!

Já hún Anný vinkona mín er búin að eignast litla stelpu. Var búin að segja ykkur það að þetta yrði stelpa. Birkir já þú mátt eiga smá í barninu enn ekki meira enn ég. Eigum við að segja 50/50 og málið er dautt ??

Var svo heppin að fá mynd af þessari himnasendingu....njótið:)

DSC00062

 

 

 

 

 

 

Sjái þið ekki að hún er jafnsæt og mamma sín og Anna frænka ???

Það eitt er víst að fegurðin er afar fögur,að hún mýkir og friðar, vekur og bregst aldrei.

Til hamingju með gullmolann elsku vinir mínir.

Kv Anna Vala


Hegðun, atferli og framkoma

Ljón: Hver þarf að vera sérfræðingur í öllu? Þú breiðir út hamingju og gleði á klaufalegan og skrýtinn hátt - en áhrifin eru þau sömu og ef þú hefðir gert það með óaðfinnanlegum glæsibrag. Fólk er glatt.

shoppingSatt satt satt....hver vill svosem vera sérfræðingur í öllu.
Enn það er að koma helgi, hreinlega alveg að bresta á. Þetta er búin að vera hin skrítnasta vika. Eftir lítinn svefn, skringilega atburði og alltof miklar hugsanir er ég á því að föstudagurinn 13. sem er í dag verði mér hreinlega bara til lukku frekar enn óhappa.
Ég er með stóran galla eða á að kalla það sérstakt áhugamál? Þegar ég fer að versla finnst mér óeðlilega gaman að fylgjast með hegðun og atferli annars fólks í búðinni. Grenjandi börnum, pirruðum foreldrum, einstæðum feðrum og einstæðu fólki almennt. Klæðaburði fólks og samræðum. Ég hreinlega gleymi mér í að fylgjast með mannlegri hegðun. Hún er ekki alltaf slæm. Oft mjög sæt, t.d pör að kaupa í matinn og eldra fólk er sérlega krúttlegt. Ekkert sætt samt við frek börn að heimta nammi við kassann, þau finnst mér óþolandi. Sérstaklega gaman finnst mér að mönnum sem að keyra bara körfuna meðan að konan týnir í hana. Enn skemmtilegra fannst mér eldri maður í Bónus sem var að reyna að lesa utan á Sviðahausa. Hefði ekki verið gaman nema af því að maðurinn var með risa stækkunargler til að geta lesið utan á pakkningarnar. Í þessum sporum fyllltist ég reyndar líka þeirri hræðslu að maðurinn gæti verið á bíl fyrir utan og að augnlæknirinn væri frændi hans sem myndi leyfa honum ásamt öðrum blindum gamlingjum að keyra.

Kannski er best að vita ekkert

Góða helgi fólk

 


Mannskepnan sem fæðist ekki vond

angel3Í færslu minni þann 4.apríl missti ég það greinilega þegar að ég talaði um að mannskepnan fæddist vond. Það er að sjálfsögðu ekki rétt og þar sem ég er mannleg þá tek ég þetta til baka. Fékk símtal frá þvílíkum gullmola sem minnti mig á að þetta væri alls ekki rétt. Gullmola sem fær mig alltaf til að líða betur og sjá hvað allt getur verið fallegt. Gott fyrir t.d starfsfólk Krónunnar að ég hafi átt þetta samtal þar sem að ég flaug inn himinsæl og brosandi út fyrir eyru og bauð öllum góðan dag.
Fólk fæðist auðvitað ekki vont. Við fæðumst öll falleg og góð með hreint hjarta. Það er bara svo fljótt að skemmast í þessari veröld sem að við búum í. Ég held að við verðum að leggjast á eytt við að gera hana betri. Byrjum daginn á því að hugsa; ég ætla að vera góð í dag og gera mitt besta til að bæta heiminn. Hættum að horfa á ríkisstjórnina og alla aðra. Lítum í eigin barm. Ég veit að ég  þarf þess oft.
Langar líka til að minna ykkur á að gleyma ekki öðrum í öllu þessa lífsgæðakapphlaupi.
Ef þið sjáið manneskju í neyð ekki labba framhjá, ef þið sjáið heimilislausa eða aðra sem eiga bágt, ekki taka sveig. Bjóðið góðan dag. Sýnið fólki fram á að veröldin getur orðið betri heimur ef VIÐ hvert og eitt tökum okkur á.

"Það sem þú átt í vasanum er ekki mikilsvert, eingöngu það sem þú átt í hjarta þínu"

Anna kærleiksbjörn


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband